GER heildverslun tilheyrir GER verslunum, ásamt vörumerkjunum Betra Bak, Håstens, Dorma og Húsgagnahöllin.

Við bjóðum upp á úrval af vönduðum vörum og veljum vörumerki okkar af einstakri kostgæfni til að prýða hvert heimili, hótel eða hvern veitingastað. Það getur verið vandasamt verk að velja gjöf fyrir stóran hóp. GER heildverslun býður fjölbreyttar vörur fyrir öll tilefni en einnig gjafakort handa fyrirtækjum og stofnunum. Með nánast ótæmandi vöruúrval er einfalt að finna hjá GER verslunum gjöf sem hentar hverjum og einum.

Sölufólk hjá GER heildverslun hjálpar þér að finna réttu gjöfina fyrir þitt starfsfólk og þitt tilefni. Hafðu samband í síma 588-1111 eða sendu tölvupóst á netfangið sala@gerheildverslun.is